gone for a whileFanney Vala Arnórsdóttir
ég ætla að hætta blogga í bili...ég held ég vilji ekki vera alveg svona inní þessari netmenningu...ef fólk vill vita hvað er að frétta af hvort öðru þá er alltaf hægt að hringja...og svo er fólk með msn...ég var inná facebook áðan og fór svo á myspace og var að tala á msn, með kveikt á skype og svo kom ég loksins á bloggið mitt og fór að hugsa...þetta er rosalegt...við erum nánast orðin eins og í wall-e...nema við löbbum ennþá...æji kannski er þetta bara tímabundið ógeð en ég nenni bara ekki að það geti bara allir einhvern veginn fylgst með lífinu mínu og hvað ég er að gera..það er ekkert skemmtilegra en að hitta fólk sem les ekki bloggið manns eða trackar mann á facebook því þá hefur maður eitthvað að segja því fólki. annars er það alltaf já einmitt ég las það á blogginu þínu eða já einmitt ég sá það á facebook.
hvað varð um persónulegt prævasí?? ahh hvað er íslenska orðið....uuu ég bara man ekki...eina orðið sem kemur upp er innantómt.....stundum finnst mér eins og ég lifi meira í tölvunni eða þú veist ég á svo mikið af vinum í tölvunni...ég held svei mér þá að við hefðum att að stoppa á emailum....
en ég veit samt alveg hvað þetta er allt stórkostlegt og maður getur loksins haldið sambandi við alla vini sína og fjölskyldu og allt soo agalega frítt...og það er æði...but I couldn't help but wonder (SATS heheh) hvenar erum við farin að misnota þetta??
það er bara er orðið svona ahh já ég átti eftir að skoða facebook og allt þetta og í staðinn fyrir að heyra í vinum okkar eða leggja smá á okkur til að hitta þá, þá spjöllum við á netinu...svei mér þá við deitum meira að segja á netinu....don't date robots....
ég er búin að blogga stanslaust bara siðan 2005 eða eitthvað...enough I say....mér er farið að leiðast þetta...ég veit alveg að ég get læst síðunni minni...eeeennnn ég ætla bara að hætta
sooo for now...túrílú masstíur
life is good againFanney Vala Arnórsdóttir
heilagur bose og gleði...snúran á headphonunununm mínum skemmdist um svona miðjan ókt. og líf mitt eins og ég þekti það hrundi...en ég fór í búð þar og bað um aðra snúru en þeir gátu bara selt mér ipod heaphone svona hvíta draslið...og ég bara uurggh okei ég redda þessu þegar ég kem til london....en svo bara vandist hvíta draslið og ég hreinlega gleymdi hvað lífið gat verið gott...búin að vera hérna í london í tvær vikur að labba um og gerði bara ekkert í málinu...svo í dag var ég niðrí bæ og svona jæja best að skoða þetta...og fékk snúru....og kom heim...og ég veit bara ekki hvað ég var að hugsa að gíða svona lengi með þetta....tónlist er svo dásamleg í þessum eyrnatólum....ég elska þau...á við rúmið mitt...og þá erum við alveg komin út í real love...en ég held bara áfram að labba um borgina...held ég sé að alveg að verða búin með svona alveg miðborgina...skoðaði á google earth um daginn að ég er að labba svona 10-25 km. þegar ég tek svona túristalöbbin mín....lengsta sem ég hef farið var 25 km. það er bara til mývantssveitar nokkurn veginn...aldrei myndi ég láta mér detta það í hug að labba upp í mývó...enda er það upp heiði og eina...
komin með kvíða að koma heim...ekki alveg á hreinu hvað það er....hlakka mjög mikið til að hitta alla...en eitthvað sem er skelfandi...kannski kuldinn?? hahaha.....jáá ég er að missa félagslega hæfileika held ég.... en það er fljót að koma aftur...mamma kemur eftir 4 daga og verður fram á sunnudag og við fljúgum saman heim....hvað er það með þetta heim? annars lenti ég nú í því í fyrsta sinn að kalla reykjavík sem stað heim...var eitthvað í háskólaspegúleringum og var eitthvað svona hmm ætti ég kannski bara að fara í HÍ og svo hugsaði ég neeei ég vill ekki vera í háskóla heima....ekki þannig að ég eigi ekki frábært heimli í bænum og það er alveg heim...en þetta er samt ennþá bara háskóli í bænum og hlutir í bænum....svona er heilinn skemmtilegur...
sé fyrir mér að heilinn sé þannig að hann leyfi okkur bara að sjá svona á yfirborðið hvað hann er að gera...og svo er hann bara með allt hitt plásið eitthvað að krauma...
jæja ég ætlaði mer að hafa þetta ekki nútímalegt íslenskt blogg og það tókst...í hverju er það falið??
en ætla að fara að hlusta á tónlist....luvs u all
túrílú masstíur
ellefu dagarFanney Vala Arnórsdóttir
jájá krakkar mínir...nú eru ellefu dagar í heimkomu...ííííísland...eg get ekki neitað því en mér er farið að kitla í magann...og eigilega svona upp í háls híhíhí....en burt séð frá því er ég í ástinni minni, Dondlon....hér er ástandið svo að leigubíll er fyrir milljónmæringa og undergroundið fyrir þá ríku...ég horfi á fólk sem labbar niður í tubið og hugsa váá hvað þessi hlýtur að vera ríkur...síðan labba ég um og tríta mig kannski í strætó ef mér er orðið mjög kalt hehe...
en engu að síður mjög gaman...líka stuð að fá að prófa að vera svona eins og fjárhagslega á botni samfélagsins...það er samt ekki að ég eigi ekki peninga..svona á íslenskum mælikvarða...en það kostar t.d. með ostrukortinu 2 pund í tubið, stundum aðeins minna og stundum aðeins meira...en 2 pund eru bara 430 krónur..það er næstum því 500 kall fyrir almennningsamgöngur örstutta leið..það er ekki nema ég sé að fara frá einu horni borgarinna í annað, þá kannski borgar það sig...en tæplega þó....síðast þegar ég var í london þá voru 2 pund 240 krónur...og það var ekkert í gamla daga...það var í janúar....
en ekki skal væla yfir því of mikið...ég er að komast í svo mikið jólaskap...ef ég heyri jólalag þá fer ég að grenja...sem er vandræðalegt því að ég heyri jólalög bara svona í búðum og á kaffihúsum. og bara mig langar að hengja seríur, brjóta jólakúlur og knúsa jólasveininn....I'm dreaming of a white christmas....gott að ég engin jólalög í tölvunni
ég er mikið að spá í hvað skal gera eftir áramót...nú er þetta ekkert lengur þannig heimur að maður geti bara gert það sem manni dettur í hug...nei nei..nú krefst þessi heimur þess af manni að maður hugsi...helvítis frekja...alla vega þá er ég að prófa þá nýjung og það er bara soltið tricky svona...ég ætlaði að koma heim að vinna...en það er eigilega ekki alveg í boði lengur...eða svona já má skoða það en ekkert hægt að hengja stakk sinn á það. jæja hvað er þá hægt að gera...jú það er hægt að fara í háskóla og fá námslán svona til að hengjast ekki og hin svona nokkuð álitleigi kosturinn er að koma hingað til london og vinna á skyndibitastað eða hóteli...og eins og efnahagsástandið er akkurat núna er það mjög álitlegt því að launin hér eru náttúrulega gríðarleg þó maður sé bara í einhverjum skíta jobba... hiiins vegar veit maður svo sem ekkert hvert ástandið í heiminum verður eftir mánuð eða tvo...svo það er spurning hvort það fatahengi brotnar.
svo er með háskólann að það er náttúrulega háskóli og allur pakkinn og ég hef önnur plön fyrir eftir áramót sem krefjast ferðalags og tíma og svona en það er svo sem alveg hægt að gera bæði...en þá þarf ég að vera mjög dugleg og vinna eins og hundur..því líka ef maður er á námslánum og stendur sig ekki þá bara er maður komin með yfirdrátt á hausinn sem er ekki óskandi á þessum tímum....og ég hef bara ekki gert neitt að viti í svo laaaangan tíma að hugsunin hræðir mig örlítið...eins og maður var mikil þjarkur hérna í denn....
þannig öll plön er skekkt og vansköpuð og maður verður bara að slummpa á rétt...en akkurat núna langar mig bara heim...svo ég ætla að sækja um HA og ákveða þetta svo bara um áramótin þegar ég er búin að ná úr mér útalndahrollinum.... já það er vandlifað hahaha....en holt og gott að þurfa að hugsa aðeins og fá ekki bara allt upp í hendurnar....light in the dark...
já ég er fegin að ég er ekki obama...eða bara stjórnmálamaður yfir höfuð...ekki skemmtilegt að taka við á þesum tímum...en sei sei hver er ekki tilbúin í smá áskorun...
ég ætla á bretti þegar ég kem norður...og það er bara eins gott fyrir snjóinn að vera tilbúin þá í allri sinni fegurð...
ætla fara koma mér í labbið í london...sem gæti svo sem alveg verið nýyrði...neee
en túrílú masstíur
there's no place like londonFanney Vala Arnórsdóttir
já ég er komin til baka í nútíman...komin í skítugu góðu stórborgina london....svaf og svaf og svaf og svaf...13 tíma kannski eitthvað þannig...það var ægilega gott...er núna að safna kjarki í að fara út...6 stiga hiti hljómar eins og ég eigi eftir að deyja þar sem 14 stig voru orðin hryllingur...en ég manna mig upp í þetta..einu sinni vikingur alltaf vikningur...eða hvað??fórum í gær að borða indverskan...það var rosa gott...fá smá bragð...spánverjar eru ekkert heitir fyrir kryddum og slíku rugli...og ég var bara orðin hálf afvön sterkum mat og heilinn í mér fékk bara eins og rafstuð...sem var dásamlegt...og allt var svo gott....svo var auðvitað stórkostlegt að hitta jenný systur...er ennþá að ná því að hún sé í sömu borg....
er að spá í að kíkja aðeins niður í miðbæ...þarf að fá mér ostrukort fyrst á kings cross...en allt gerist þetta úti...þar sem kuldinn er....
mjög gott að taka samt svona millistig áður en ég kem heim...og þá tek ég millistig í reykjavik áður en ég held norður þar sem veturinn er vetur en ekki kaka....og þá ætla ég að hoppa á brettið mitt og rúlla niður hlíðarfjall eins og ég geri einna best....það er að segja ef ég þori út í kuldann
ég er algjör homblest kaka...brún að framan og hvít að aftan...góð báðu meginn svo sem en soltið kjánalegt lúkk...
alla vega ætla fara reyna þora í sturtu alla vega...
túrílú masstíur...
þetta er bara platFanney Vala Arnórsdóttir
soooo...það var einu sinni dvergur sem átti svo ljóta peysu að meira að segja froskarnir hlógu að honum. hann þorði samt ekki að fara úr peysunni því að hann var svo loðinn á bringunni...aumingja dvergurinn fór í gegnum lífið í ljótri peysi þar til einn dag helti ugla rauðvínsglasinu sínu yfir peysuna...þá fór hann úr henni og reyndi að fela sig fyrir öllum....loks kom sá dagur að hann þurfti að koma undann runnanum...hann reyndi að hlaupa eins hratt og hann gat framhjá öllum, en auðvitað sáu hann allir. stór skóarbjörn stoppaði hann og sagði mikið ertu með loðna og fallega bringu...og dvergurinn starði á björninn...gat það verið að honum finndist það í alvöru...og já björnin bauð honum í afmælið sitt með því skilyrði að hann kæmi svona...og dvergurinn gerði það...og það kvöld eignaðist hann fullt af vinum og enginnn hlóg að honum....er búin að komast að því hvað heimurinn er lítill...því að heimurinn okkar sem einstaklings er ekki stærra en heilabúið okkar...og við erum föst inn í þessum heilabúsheimi...make peace with that...
held ég fari að reyna troða ofan í mig einhverjum mat...eða kannski bara ís hehe
túrílú masstíur
hverju helduru að þú ráðir?Fanney Vala Arnórsdóttir
hola hola...spánverjar tala mjög hátt og eru soltið háværir bara svona yfir höfuð...en spænsk börn....þetta er óóótrúlegt..ég er ekki að mógða neinn...en vááá hvað þau geta haft hátt...núna eru svona 60 spænsk börn í kringum mig.... og ég held ég hafi aldrei upplifað annann eins hávaða...og ég fór nú eitt sinn á prodigy tónleika í denn..þetta er náttúrulega bara einhver vítahringur hérna og það hljóta allir bara að vera hálf heyrnalausir...nei nei...en vááá...jæja í annað....það er eitthvað alheimsplan að ég ekki bara hætti að fitna eins og göltur heldur að ég grennist hraðar en matt damon...ég get bara ekki með nokkru móti fengið peninga virðist vera...fyrir tveimur vikum tók ég út fullt af pening og þá sendu mínir ástkæru foreldrar mér kort frá sparisjóðnum...en póstþjónustan hérna er ekki til fyrirmyndar og kortið mitt kom til madrid fyrir 6 dögum...ooog ætti að koma hingað í næstu viku,...og það er bara eðlilegt...það eru tæpir 3 tímar með lest milli madrid og sevilla...labba þeir á milli með póstinn?? já maður spyr sig...
en ég ætlaði nú bara að redda mér með kredit kortinu á meðan en nei nei það var bara hrifsað af mér í hraðbanka og ég get ekki fengið það til baka því það er komið á svartann lista og er bara ónýt...líklega af því kauðþing er komið með nýja kennitölu...meira helvítis ruglið hérna...þannig ég borða kannski bara hrísgrjón og íslenskt nammi um helgina....það drepur mann ekki....
kreppz...ætlaði svo rosalega að ganga í ræktina í gær...fór í fötin og hjoppaði í hraðbankan spræk sem kálfur að vori...og þá hrundu ósköpin yfir...en ég var svo brjáluð að ég hljóp miðbæinn á enda og aftur til baka í brjálaðri rigningu og fór heim og þjösnaðist í einhverjum æfingum þanngað til ég náði ekki andanum...þá stóð ég upp og leit í spegil...ég var ekki rauð í framan heldur fjólublá...og með maskaran gjörsamlega út um allt...þetta var alveg eins og úr einhverri rosa ruglaðri hryllingsmynd...og ég gleymdi að taka mynd...fór bara í sturtu eins og eitthvað fífl...
annars búið að vera mjög næs vika...bara eitthvað að slappa af...ná áttum mjög mikið...reyna tengjast við raunveruleikann...búið að ganga mjög vel...hlusta á funhouse lög á youtube ... spennt að fá plötuna í hendurnar...lenti hins vegar í því áðan að ég varð bara einmanna eins og ég hef aldrei verið....held ég hafi aldrei verið almennilega einmanna solo...ágætis reynsla....hugsaði um alla ALLA sem ég elska og komst bara að því að sumir eru mér meira virði en ég hafði gert mér grein fyrir...áhugavert það....
allt svo merkilegt og áhugavert, erfitt og skemmtilegt, þroskandi og upplífgandi...I'm crawling through the doggie door, my keys don't fit my life no more...
heil saga í því....palabras palabras.... nóg til af þeim...
já ég hlýt að líta út eins og kani
túrílú masstíur- hasta luego
tilfinninga hringurFanney Vala Arnórsdóttir
hola....ég held ég hafi upplifað nýja vídd tilfinninga áðan....það er þýsk stelpa sem býr með mér sem er mjög ljúf og góð stelpa.....en guð minn góður hún veit ekki rassgat um list og listnám...HÁLVITI. hún sem sagt heldur því fram að það eyðileggi listamann að fara í nám...og að list sé bull því að það geti hver sem er leikið og hver sem er lært að spila lag....og eina ástæðan sem hún hefur er að hún tók einhvern bókmenntaáfanga í framhaldsskóla og líkaði hann ekki....WTF....uurrgh...og ég svona tók þessu bara rólega fyrst og bara já okei nei nei..og fór bara svona aðeins að reyna útskýra...en hún bara bíddu þetta er bara mín skoðun má ég ekki hafa hana?? jú auðvitað máttu það...en ef ég segði að heimurinn væri eins og tígull í laginu þá myndi hún reyna að sýna mér fram á sannleikan...en það skipti engu máli hvað ég sagði hún bara nei nei nei...list er ekki alvöru og það geta allir gert þetta og þetta er kjaftæði..henni líkar svo illa við að það sé talað um list sem vísindi...og ég sagði henni að systir mín væri Í ASAD .... voff...og ég hef bara aldrei orðið eins brjáluð...ég var svo brjáluð að ég bara missti andlitið...beinin skulfu og ég bara kom ekki upp orði...endaði á að segja henni rólega að þetta mætti alveg vera hennar skoðun en hún ætti að passa sig á að tala um hluti sem hún veit ekkert um við fólk sem þeir skipta miklu máli....og svo bara fór ég inn í herbergi og skalf þar í svona hálftíma....aldrei komist á þetta stig reiðnar og fór bara hreinlega í hring....merkilegt þaðannars er ágætt að frétta....mér er farið að leiðast örlítið hérna...bara af því að þetta er að verða bara svona lífið....mig langar að fara eitthvað annað hehehe....búin að vera hér í 5 vikur....er líka ekki búin að vera ánægð með skólann....við erum ekki búin að læra neitt nýtt í tvær vikur..guð veit hvers vegna....tókum próf fyrir 2 vikum og tókum sama próf í gær, hvað er það? ég fékk átta á fyrra prófinu þannig það er ekki eins og við höfum öll fallið....bara hollensku krakkarnir...hér er allt morandi í hollendingum..eða í skólanum....4-5 í hverjum bekk....mjög spes...
en hér heldur djammið áfram...er ekki frá því að ég sé að fá fullkomið ógeð af þessu....reyni að hvíla mig vel um helgina...er búin að vera lasin núna í viku...þarf að fara reyna ná því úr mér...
er eitthvað óherss í dag...dagurinn náttúrulega byjraði ekki svo vel með þessari þýsku...hehe alltaf þegar ég skrifa er ég eitthvað hálf óhress...það er af því að þegar mér líður ekki svo vel þá fer ég á netið og tala við alla sem ég elska og þá blogga ég....hehehe...það er voða gaman hjá mér sei sei já...50 dagar í að eg fari heim...finnst það ægilega langt...en eftir viku er ég hálfnuð með tímann minn hérna svo það er greinilega alls ekki langt...
jæja ég kveð í bili...reyni að blogga næst í með góða skapið...
adios...hasta luego
túrílú masstíur
1000 mílur á klukkustundFanney Vala Arnórsdóttir
maður heyrir oft svona í bíómyndum og lögum að lífið fari 1000 miles per hour...og ég hugsaði alltaf já ég veit hvað þau meina....eeen núna veit ég hvað þau meina...hérna er lífið svo ruglandi og fer svo ægilega hratt að stundum er ég ekki viss um hvort ég sé labbandi með straumnum eða hvort ég liggi bara á bakinu í ánni....en allt er þetta þó jákvætt...hljómar soltið neikvætt eitthvað...eina neikvæða er að maður verður að passa sig að standa...og það er svo skrítið að þegar maður er ekki umkringdur ástvinum þá er töluvert erfiðara að halda fótunum undir sér....en þá notar maður bara skype hehe...jei enter er farið að virka...en það er mjög gaman hjá mér...strax komin 9. ókt...það er soltið rosalegt...í kvöld er 25 ára afmæli skólans og þá verður gríðarlegt partý á bát á ánni...það ætti að verða rosalegt stuð...held að flestir ætli að mæta....
ég er búin að gera mjög margt siðan síðast en ég veit ekki hvort það væri mjög spennandi ef ég færi að þilja það upp hérna...búin að borða mikið tapas, ís og kökur. hlaupa aðeins....tók rauðvíns verkfall á sunnudaginn..alveg merkilegt hérna hvernig það er alltaf rauðvínstilefni....verkfallinu lauk í gær
síðasta vika var mikið "djamm". ekki beint djamm en ég fór út á hverju kvöldi á kaffihús eða bar og eittthvað svona...og svo var helgin tekin með trompi...lamin í andlitið og fleira til...búin að vera með bólgna og bláa brún þessa vikuna...af hverju ég var lamin í andlitið?? já af því ég spurði strák um síma því minn var rafmagnslaus..og hann gleymdi að setja upp skiltið sitt sem stendur ekki tala við mig ég á kærustu...þannig það næsta sem ég veit er einhver pinkupussa að lemja mig í augað....ég var bara fullorðin og labbaði í burtu...
en þess vegna ákvað ég að taka þessa viku rólega...alla vega eins rólega og hægt er hér á þessum suðrænu slóðum
búin að vera smá heimþrá í mér eftir helgina...leið í fyrsta sinn eins og ég kannski væri ekki alveg nógu fullorðin í þetta...þetta er svo öðruvísi en heima...en hins vegar e rþað einmitt ástæðan fyrir því að ég kom hingað...svo það verður bara að hafa gaman af því...af því manni líður alls konar...fékk eitthvað svona 2 mín brjálæðiskast áðan yfir því að hafa hætt í háskólanum í denn...var bara eitthvað vá ég gæti verið að fara í síðasta árið mitt næsta haust...en svo sagði ég vááááá. og þá var það búið...góð saga
en ég er að spá í að fara reyna skoða eitthvað merkilegt til að gera hérna í sevilla...aðeins að fara hræra upp í þessu...túrílú mastíur...
já, á nú að fella mann?Fanney Vala Arnórsdóttir
hola....Qué tal?? spænskan er öll að koma...held ég sé að fara komst yfir þennan kafla í þessu námi þar sem ég skil ekki neitt og næ ekki að ráða fram úr neinu...er búin að vera hitta fólk sem talar enga ensku og það gengur bara ágætlega að tjá mig...ég skil ekki margt en sumt og tala eins og smákrakki en það virkarhelgin var mjög skemmtileg...reyndar var soltið leiðinlegt að ég ætlaði að fara í ferð til annarrar borgar á laugardaginn og var búin að greiða 25 evrur fyrir...rútan átti að fara frá hóteli klukkan korter yfir 9 fyrir framan hótel sem ég veit alveg hvar er....en þrátt fyrir að hafa verið snemma í því þá náði ég að villast og missa af rútunni...og ég hef bara aldrei villst hérna áður þannig þetta var frekar pirrandi..sérstaklega þar sem ég vissi alveg hvert ég var að fara...skil engan veginn hvernig þetta gat gerst....en ég eyddi þá bara deginum í að hangsa heima og um kvöldið fór ég út á alameda með evu súsönnu sem er íslensk stelpa sem býr hérna með systur sinni en er samt í mínum skóla...alla vega við sáttum heillengi og sötruðum rauðvín..og uppáhalds drykkinn minn hér, rauðvín í límonaði...það er svo frískandi....svo ákvað ég að fara bara á djammið með henni og við hittum nokkra afríska gaura sem hún þekkir og fórum á diskótek að dansa dansa...
svo í gær þá fór ég á flamengo bar og sá klassískt flamengo....um daginn þegar ég fór var það modern flamengo og það var ægilega spes en mjög flott....hins vegar eftir að hafa séð hitt þá kýs ég klassískt.....
við heima herbergisfélagarnir fórum út að hlaupa og erum að fara aftur á morgun..það gladdi mig gríðarlega að önnur þeirra er að æfa sig fyrir eitthvað mót og dregur mig með...þarf þess hérna...einhvern veginn ekki svona það fyrsta sem mig langar að gera en svo er mjög gaman að fara....hlaupum í mjööög fallegum garði þar sem er fullt af fólki og alls konar...
veðirið um helgina var bara 25 stig og brjáluð rignig á köflum.....en mér skilst að í dag og morgun eigi að vera svona miðlungs dagar ....smá sól smá ský og heit....en svo á miðvikudaginn á að vera eitthvað alveg crazy nice veður..hlakka til
leyndó leyndó sem má ekki segja....spænska er spes mál...það eru fjórar þátíðir skilst mér....það er soltið spes...þátíð er bara þátíð....eða hvað? er að komast að því að eins vel og ég kunni íslenska málfræði þá hefur það glatast með árunum....
en nú er pásann mínn að verða búin og ég verð að fara skrifa ástarljóð á spænsku...hvernig sem ég fer að því
túrílúos masstíos
Fanney Vala Arnórsdóttir
herbergisfélaginn er miðaldra maður sem býr einn... en hann á kærustu og þau eru alltaf hjá henni svo ég hef hitt hann tvisvar. sem er fínt...við búum þrjár stelpur í íbúðinni, ein frá hollandi og ein frá þýskalandi og það er bara næs... fínasta herbergi og bara allt alveg eðal heima...fyrir utan netið...þeir eru agalega aftarlega á merina hérna með allt svona tækni...en ætli maður brosi ekki bara við því....ég er ekki búin að gera mikið þannig lagað. helgin fór í að taka út spennufallið. svaf og svaf og þess á milli chillaði ég...fór svo á sunnudagskvöldið á torg sem heitir alameda og ætlaði á tónleika og svo líklega var þeim frestað vegna veðurs..en það var soltil gola...ekkert tiltökumál þó....
ég er mikið búin að vera pæla í íslenskunni meðan ég er hérna...rosalegt hrognamál...við erum oft að segja svona hvernig maður segir hluti á okkar tungumálum og það er mjö-g oft agalega svipað á hinum málunum..svo kemur íslenskan. eins og farsími..það er einhverskona útgáfa af mobile í öllum tungumálunum sem eru í bekknum mínum...en á íslensku farsími...eða gemsi...bien...
helvítis evra...eða helvítis króna...veit ekki...
stundum er mér svo heitt að mig dreymir um að hoppa nakin í snjóskafl...en það er bara stundum...
maturinn hérna er ákaflega misgóður...en bakaríin eru algjört grín..þvílík dýrð...fer helst ekki inní þau því það er erfitt að standast freistingarnar...
núna er ég mjög svöng. gleymdi nestinu mínu...ætlaði um daginn að fara reyna borða minna og átti engan morgunmat...svo var ég í hádeginu orðin brjáluð og fór á mcdonalds og fékk mér big mac máltíð..megrun verður seint mitt thingy....
í gær var vondur dagur..ég var fúl og leið..fór bara heim að sofa eftir skóla...en svo hringdi ég í mömmu og hún fór að spurja og ég komst að því að ég var að drepast úr nísku og hún sannfærði mig um að hætta því...svo heyrði ég í pabba og heiðu og þau voru alveg sammála....svo í dag tímdi ég að kaupa mér kaffi vúbí
jæja nóg af þessu bulli...
er að fara í einhverja strandarferð eða svona bæjarferð á laugardaginn..kannski gerist eitthvað frásögufærandi þá...
túrílú mastíur
